Hver á skutl.is?
Skutl.is er heimasíða stofnuð af Stúdentaráði Háskóla Íslands í því skyni að auðvelda stúdentum að ferðast til og frá háskólasvæðinu. Bíleigendur geta auglýst laus bílsæti frá ákveðinni staðsetningu og á tiltekinn áfangastað á háskólasvæðinu. Þeir sem þiggja far þurfa hugsanlega, eftir samkomulagi við bíleiganda, að taka þátt í bensínkostnaði. Með þessu móti má spara bensínkostnað, fækka bílum á háskólasvæðinu og um leið fjölga lausum bílastæðum. Notkun heimasíðunnar er stúdentum að sjálfsögðu gjaldfrjáls.
